03janúar
Gleðilegt ár allir saman. Takk fyrir það gamla og svona. Er búin að setja nokkur nýársheit.
Nr. 1 hætta að reykja – gengur mjög vel skal ég segja ykkur
Nr. 2 kaupa nýtt rúm fyrir miðjan feb. – hann er ekki ennþá komin en þetta er algjörlega að fara að rætast. Við Raggi sofum í 90cm rúmi og erum búin að gera það í næstum heilt ár. Ekki skemmtilegt skal ég ykkur segja.
Nr. 3 Hætta að blogga. Já ég ætla að hætta þessu. Framboðið er orðið alltof mikið til að maður sé að nenna þessu. Ef þið viljið vita hvað er í gangi hjá mér þá er alltaf hægt að hringja og ef þið nennið því ekki, tjahh skrifið bara email.
P.s.Sum ykkar gætu verið að velta því fyrir sér hvort að ég sé ekki að brjóta heit númer 3 en það er bara rangt hjá ykkur. Ég skrifaði word skjal sem ég pastaði inn á síðuna. Ég er því ekki að blogga.
P.p.s. Ég gleymdi líka bara að gera þetta fyrir áramót. Alltof upptekin að borða og sofa. Þið ættuð að sjá hvernig ég lýt út eftir hátíðirnar. Áfall krakkar mínir áfall!
29nóvember
Dæmalaust skemmtilegt.. Var að sjá nýja extra sem var að koma á markaðinn. Skrambi gott með svona melónubragði. Nema einn galli og það er að bragðið fer rosa fljótt þannig að maður þarf að vera duglegur að skipt aút og fá sér alltaf nýtt og nýtt sem gerir það að verkum að tyggjóið verður fljótt búið. En já ég sé það núna... Þetta er auðvita bara sölutrix til að fá fólkið til að kaupa meira..
Sniðugir þarna hjá extra. Hvers lendskt er þetta fyrirtæki annars? Veit það einhver?
Var samt að pæla í þessu kommentaleysi hjá fólki.. er svona mikið af bloggsíðum sem fólk er að skoða að það nennir ekki að skilja eftir sig smá kveðju.
Veit allavega fyrir mitt leyti að ég fer alltaf svipaðan rúnt á milli bloggsíðna með mismunandi tilbrigðum samt, fer eftir því hvað ég hef mikin tíma.
Já skiptir kannski ekki öllu.
Stelpan er að fara að koma fram á örðum tónleikum sem verða núna á föstudaginn kl. 21:30 í Héðinshúsinu á Seljavegi. En er ég að fara að spila eigiði efni núna með diggrar aðstoðar Óttars Brjáns og Ívars Péturs. Þ.e.a.s. ef ég næ að ná tali af óttari svo við getum farið að æfa.. Helvíti gott.
Já bara endilega að mæta og ef þið nennið ekki að hlusta á mig þá getið þið allavega hlustað á Jón Gnarr eða Lay low... þau verða þarna líka..
HAH er að fara að spila með þessu fólki.. TÖÖÖÖÖFFFFFF
AUfwiedersehn
(vona að ég særi ekki marga þýskumælandi með þessari kveðju minni)
22nóvember
Já strætó ferðin löngu búin og ég er búin að fyrirgefa gömlu konunni fyrir þetta..
Ég hvet alla að mæta í Snorrabúð kl. 17 á laugardag eða kl.17 og 20 á sunnudag.. STelpan verður að syngja.. ójá ekki missa af minni einstöku söngrödd. Og svo er fullt af öðru fólki að syngja líka en skemmtilegast er samt að hlusta á mig..

svona er ég... Sæt...
Var að horfa á ísland í bítið nú í vikunni og var Sigurður Kári að tjá sig um Rúv frumvarpið sem hann er nú fremstur í flokki með. Segja margir að þetta frumvarpi stríði gegn stefnu Sjálfstæðismanna því einkavæðing ríkisfyrirtækjana hefur jú verið helsta baráttumál sjálfstæðismann á þessu kjörtímabili. En nú vilja þeir halda í Ríkisútvarpið en vilja jafnframt hafa puttana aðeins í því hvernig þetta fyrirtæki skuli vera rekið. Sigurður rökstuddi sitt mál vel og var hann næstum því búin að sannfæra mig. En svo fór hann alveg með það..
Jú við þurfum að borga afnotagjöld af ríkisfyrirtæki til að styrkja rekstur þess en samhliða því fjármagni er ríkið að fá tekjur frá auglýsingum líka og fá þeir líka ýmsa aðila til að kosta suma sjónvarpsdagskrá að því nemur 10%. Var Sigurður ekki sáttur með það og vill breyta þessu fyrirkomulagi hvað auglýsingarnar varða og setja mörk fyrir sjónvarpið í þeim efnum. Jújú mikið rétt rukkaðar eru 7000-8000 kr á þriggja mánaðarfresti. Mætti alveg endurskoða það allt saman en hvað er þá Stöð 2 að gera!!! Þeir rukka 5000 á mánuði og setja svo auglýsingar inn eins og vitlausir væru og slíta í sundur alla dagskrá með þessum óskapnaði. Tíðar endursýningar og 70% eru þetta ódýrt sjónvarpsefni, leyfi mér að benda á spænsku sápuóperuna sem sýnd er að degi til og annað efni.
Vissulega getur Sigurður sagt þetta um Ríkisútvarpið því það er jú ríkiseign og tímabært að endurskoða þetta eins og ég sagði hér ofar en er ekkert hægt að pikka í Stöð 2 sem veitir enga sérstaka þjónustu og gerir að mínu mati ekki vel fyrir sína viðskiptavini. Leyfi ég mér að benda á blogg færslu hjá einni ágætri konu
http://www.bebbaoghjolli.blogspot.com/ dagsetning 15. nóvember.
Og hana nú... Smá reiðifyrirlestur og hrósa ég öllum þeim sem hafa nennt að lesa þetta.
sæl að sinni
08nóvember
Var stödd í strætó áðan. Leið 12. Fer sæbrautina og svo dalbraut, hlemm og á lækjartorg. Allavega.. Fínt í strætó, nóg af útlendingum eins og vanalega en mjög mikið af gömllum konum sem taka þessa leið greinilega. Strætó var fullur af þeim. Alls konar gömlum stykkjum. Tvær af þeim sátu við hliðiná mér hinu megin við ganginn. Og eins og maður gerir oft þá fer maður að hlera samtöl hjá fólki.
Hefði betur átt að sleppa því. Jú því að önnur gamla koana var að gorta sig yfir því að hún hefði verið að leika stadista gamalmenni í áramótaskaupinu. Og sagði frá atriðinu. Svei henni!! AF hverju gerir fólk svona! Fyrir mér er áramótaskaup jafn mikill þáttur í komu nýss árs eins og jólamessan er í komu jólanna. Eða flugeldarnir á miðnætti og óskir og kossar um nýtt ár.
Fyrir mér er áramótaskaupið mjög heilagt og ég vil bara ekki hafa það að einhverja gamlar kellingar séu að blaðra í stræto mjög fyndnu atriði úr skaupinu. Því það er alltaf mjög tæpt hvort skaupið verði fyndið eða ekki og það á að koma á óvart! Sakupið styttir manni stundir frá því komið er heim frá brennunni og þangað til kl. verður 12 og þessi spenna og tilhlökkun má ekki verða eyðilögð.
Svei þér gamla kona.. svei...
02nóvember
Nú er aftur komið að því að fara yfir síðasta lista
- Hætta að tala um Snata - Það hefur bara tekist.. Hann er ennþá til heima í glasi ef einhver vill
- Smyrja matarolíu á rennuna á blokkinni svo nágrannarnir hætti að klifra upp svalirnar - Höfum gert það nokkrum sinnum. Borið lítin árangur. Rennan er núna brotin neðst niðri
- Skrifa miða á baðmottuna sem þeir eiga og er einhverra hluta vegna stödd á svölunum hjá mér og biðja þá um að kippa henni með í næstu ferð - Lukkaðist ótrúlega vel. Þeir komu niður og lömdu mig. Er núna með kæru í gangi og vantar eina tönn. Í mig þá
- Banna fólki að kaupa sér skær appelsínugular loðnar baðmottur - Átakið hefur tekist með eindæmum vel. Er búin að vera duglega að standa fyrir framan þá staði em selja þennan hroðbjóð og frætt fólk um viðbjóð þessara motta. Salan hefur farið minnkandi. Sem eru alltaf góðar fréttir þegar um svona óskapnað er að ræða.
- Halda námskeið hvernig fólk eigi að keyra í hringtorgi - Námskeiðið fór fram síðasta sunnudag kl. 14:00 í Háskólabíó. Mætingin stóð ekki undir kostnaði en ég bjóst við því. Markmiðið var heldur ekki að græða pening heldur að gera umferðina aðeins öruggari. Farið var svo í kennsluferð um hringtorgið á hringbraut og voru þáttakenndur vel merktir í vestum og með borða um hausinn. Hef ég einungis fengið lof fyrir þetta framlag mitt
- Fara austur um jólin og verða feit og pattaraleg og kyssa alla sem ég hitti- Jólin eru ekki enn komin
- Hlaupa nakin niður Laugaveginn og garga: Nýjasta tíska og skapa smá trend - vakti mikla athygli en var ekki árangur erfiðins marktækur.
- Fara í risastóra Ikea og væla yfir því að ég eigi ekki neinn pening og geti ekki keypt mér neitt. - Já eins og flestir vita þá var payday í gær og skrúðgangan honum til heiðurs er ennþá í gangi þannig að ég get sparað tárin næstu 2 vikurnar eða svo
31október
Já ég skal nú segja ykkur það.
Komst í gegnum netbanka Glitnis heilu og höldnu. Ferðin var þónokkuð þung og gekk baráttan í gegnum hið mikla veftré h eldur brösulega.
Tókst áætlunarverkið og náði ég að skipta um lykilorð.
Ekki tók nú betra við þegar ég fór á heimasíðuna og ætlaði í sakleysi mínu að skoða mig þar um. Sakleysi mitt var svipt á örstundu því ég snarvilltist og vil helst ekki tjá mig mikið um það sem gerðist í því ferðalagi.
Jæja fólkið heldur bara áfram að geta dansað rosalega vel... væri ég til í að geta dansað svona JÁ!!
Er ekki alveg nógu sátt með hvernig gengur í könnuninni. Það atriði sem fær flest atkvæði er að fólki er alveg sama um mig.. jæja..
Best að fara að væla í koddan..
29október
sumir eru kurteisir aðrir ekki.. þannig er það bara..
Fór í glimrandi fínt matarboð til hennar Örnu minnar í gær og þakka í innilega fyrir það.
Fyrsta sem Raggi sagði í morgun var ekki góðan dag ástin mín heldur DJöfull var þetta góð sósa þannig að Arna, sósan var góð.
Franska súkkan líka.
Buzzið tók sinn tíma en adrenalínið fékk svo sannarlega að fljúga um allan líkamann. Vá hvað ég er tapsár manneskja.
Komumst svo loksins heim þegar strákarnir voru búnir að dúlla sér lengi í tölvunum.. Þá meina ég lengi og búið að kíkja á báðar tölvurnar og laga og breyuta og bæta.. Ótrúlegt..
Já annars allir að taka 1. des frá.. Gerið það eða verið taparar
26október
Er að komast að því að ég hef ekki hugmynd hvernig maður á að skrifa þetta orð. En það er ekki það sem ég vildi sagt hafa heldur að ég trúi því ekki að fólk viti ekki hvaðan fyrirsögn síðustu færsliu kemur. Nú auðvita úr ólafur liljurós... Ólafur reið með björgum fram villir hann styllir hann. Þeir sem hafa einhvern tíma farið á 13. brennu ættu að þekkja þetta. Svei....
Eignaðist stóla áðan. Ógeðslega flotta frá 1920 mjög vel með farna á aðeins 10.000. Átti þá samt bara í ca. 5 mín og borgaði ekki fyrir þá en ég átti þá samt í 5 mín.
Geggjað.. já ég veit..
22október
Var í brjálaðri útskirftaveislu í gær. Þetta er víst ekki fyrsta útskriftaveislan hjá þessum gaur heldur hefur hann haldið 2 aðrar að ég held þetta var sú þriðja og svo er ein eftir víst.. Já sumir hafa bara meira gaman af því að útskrifast en aðrir. Svona er þetta bara og svo lærir maður bara af þessu.
Fyndið atvik: Árný systi Ragga mætti í partyið hress og kát að vanda. Sat við hliðiná mér pollróleg og yfirveguð með glas sem innihélt áfengi í hönd. Eftir stund þá stóð hún upp og fór eitthvað annað. Allt í lagi með það. Að nokkrum tíma liðnum birtist hún aftur og þá svo rallandi full að ég hef bara sjaldan séð annað eins

Sigrún í sínu besta formi komst ekki í hálfkvist við hana Árnýju mína. En vert er að athuga að Árný dvaldi ekki lengi í burtu frá mér og þvílík stakkaskipti á einni manneskju á svo stuttum tíma.. dásamlegt

Þetta var snilldarveisla! Brjálað gítarparty og allir rallandi fullir. Á köflum minnti þetta mig nú best á ósættarmót og meira að segja var mini útgáfa af karlakórnum ós.. skemmtilegt..
Bráðfyndið..
Þeir sem vita nafnið á þessu lagi í fyrirsögninni fá Snata í verðlaun og koss á rassinn. Frá snata. Sem er dauður.
En hann er samt sætur.
Eða sæt.
Þetta er víst kona.
Eða kvk
19október
Ákvað að uppfæra þennan lista og segja ykkur hvernig hefur gengið...
Ræna banka til að kaupa afmælisgjöf handa Ragga - já ég náði nú alveg að kaupa afmælisgjöf en þurfti ekki að ræna banka. Sem betur fer.
Ræna banka til að geta keypt í matinn - Þurfti samt að ræna banka í þesu tilfelli því afmælisgjöfin kostaði of mikið. Skellti mér bara í kb og sópaði öllu í burtu. Tölti svo yfir í glitni og stofnaði nýjan reikning þar og er nú með betri viðskiptavinum fyrrum íslandsbanka
Biðja um fleiri svona skemmtilega og óvænta styrki inn á reikninginn minn - Fór á hnén á hverju kvöldi en ekkert gekk. Engin vildi færa mér svona óvæntar peningargjafir
Ræna fleiri banka til að geta farið heim um jólin - Jaa Raggi opnaði bara nýtt eurocard... Gætum frekar sagt að bankinn rændi okkur
Kenna Snata einhver trix - Snati var orðinn helvíti snjall að klifra upp glasið sitt
Selja Snata fyrir marga peninga - Vildi engin kaupa hann.. hann var svo helvíti ljótur
Já lömbin mín.. þannig var nú það. Vona að þið hafið notið lestrarins
og ef þið hafið eitthvað að segja endilega kommenta takk